Kominn heim.
Jæja þá erum við komnir aftur á klakan, það er frekar harkalegt að koma úr sól og blíðu, í blautan og kaldan veruleikan hér heima en samt um leið alveg yndislegt.
Þessi ferð var mjög vel heppnuð og okkur tókst að gera þetta að mjög góðu fríi, maður er sosum ekki langt í burtu tímarnir hafa breist svo mikið, ætla ekki að hljóma eins og gamall kall, en tæknin er orðin svo mikil að það er alltaf hægt að ná í mann í síma! og ég get fylst með fréttum að heiman á netinu um leið og þeir gerast.
Við erum í nettu sjokki yfir dýrtíðinni hér á Íslandi það er allt dýrara hér! og þá er ég að tala um allt, meira að segja vatnið er dýrara hér! og það þykir alveg sjálfsagt að allt sé dýrara hér, það er búið að telja mér trú um að það sé vegna þess að! við erum svo fá að það er ekki hægt að gera góð magninnkaup, þetta er eyja dýrt að flytja vörur til landsins, háir tollar og gjöld á innfluttri vöru, gæði verslunar og þjónustu, gæði íslenskrar frammleiðslu og háar tekjur sem við höfum! réttlæta þetta allt saman, það eru margar aðrar goðsagnir sem ég hef heyrt um hátt verðlag sem ég trúi ekki lengur! er farin að hallast að því að ástæðan sé mjög einföld og nafnið á henni er græðgi!!
Það er alveg yndislegt haustveður úti núna sem minnir mig á hvers vegna ég hef þraukað hér í 42 hringi, ætla að skella mér á fund og svo bara anda að mér fersku ókeypis Íslensku lofti.
Kær kveðja;)
Ţađ er líf!
Ég er alveg löglega afsakaður þegar ég heyri ekki hvað hann er að segja, er nefnilega með varanlegan heyrnarskaða sem reyndar kemur sér stundum vel, en þið látið það ekki fara lengra, ég ætti kanski að tala í eintölu þar sem sennilega eru ekki margir að lesa þetta blogg, það er sko teljari á þessu apparati og þar get ég séð hve margir hafa kíkt á bloggið mitt, það var allavegana EINN í dag! nema ég sé líka talin sem heimsókn, og þá heitir þetta víst að tala við sjálfan sig eða réttara sagt að blogga við sjálfan sig! hvað sem það nú þýðir.
En nóg um þessar pælingar, af mér og mínum er allt fínt að frétta, vorum að koma úr miðbæ Reykjavíkur að njóta smá menningar svona rétt áður en ómenningin byrjar, það er að segja áður enn fyllibytturnar taka völdin sem gerist um hverja helgi sýnist mér á fréttum alla vegana, ég eyddi nú nokkrum helgum þarna á mínum Neysluárum, og hafði bara nokkuð gaman af held ég, man ekki alveg allt einhverja hluta vegna! en það er nú önnur saga svon AA saga.
Við erum að spá í að kíkja á flugeldasýningunna í kvöld, sem verður skotið af varskipi núna ætti að verða glæsilegt sjónarspil, förum sennilega niður á verkstæði hjá stóra bróðir sem er á laugarnesinu besta stað!
Nú er mig farið að verkja allverulega í fingurnar eftir þessar gríðalegu rit störf!
Bið ykkur (þig) vel að lifa.
Kær kveðja
Benni.
Er ekki svo veikur.
Var að taka svona test á netinu, og vitið þið hvað?! ég er SUPERGIRL!!!
hver hefði getað upp á því thíhí! ætla ekki að hafa þetta langt núna.
Kær keðja
Supergirl.
Drekkjum Ísland eđa kćfum ţađ bara!
Ég hef mjög ákveðna skoðunn á þessu! hélt ég allaveganna en er bara ekki viss, en það er svo mikið ég! að vera ekki viss!
Ég veit ekki hver verðleggur fossana, fjöllin eða dalina á Íslandi en það virðist ekki vera sama hvað, hvar eða hvernig við skemmum eða mengum! það má byggja álver í hvalfirði en ekki Reyðarfirði, það má virkja á hellissheiði en ekki Kárahnjúkum, það má kafæra Reykjavík í loftmengunn, dæla skítnum í sjóinn og grafa restinna uppi í mosó.
Það má flytja inn andvirði tugi miljarða af bílum og dóti handa okkur að stórum hluta frammleit úr áli, en alls ekki framleiða það sjálf, nei takk!
Við viljum ekki orkufrekan iðnað, við viljum hátækni iðnað! og kanski 1.000.000 ferðamenn á ári, sem nátúrulega menga ekki neitt!
Hægfara dauðdagi hvað er það, það er nýasta orðið sem hinir svokölluðu umhverfisverndarsinnar nota! þvílík drama, það má alveg eins segja að lífið sé hægfara dauðdagi! Allt eða ekkert! með eða á móti! Umhverfisvendarsinni eð Virkjannasinni! Djö Bull!
Ég veit ekki hverju ég á að trúa, en samt er ég ekkert að farast úr áhyggjum! vona bara að þetta brölt okkar verði bara til góðs og að fólk geti búið áfram á Íslandi, allstaðar! ekki bara í Reykjavík og nágrenni.
kær kveðja.
Formúlan!
alanso var að bræða úr bílnum sínum.Er alveg ágætt að frétta, er komin með mynda blogg sem ég er að prófa, er svo agalega latur að blogga hér!
Þetta er linkurinn
Enn annars bara að klára formúluna!
Kær kveðja.
Var ađ setja inn myndir.
.......
Kominn heim.
Hef verið að skoða Digital myndavélar sem mig langar að fjárfesta í en gengur mjög illa að gera upp við mig hvaða vél ég fæ mér og svo annað, ég tími varla að kaupa mér myndavél núna! en samt sé til kaupi sennilega svona millistærð og fæ mér flottari vél seinna.
Gamla grjótmulingsvélin mín krassaði í gær það er að segja tölvan mín, veit ekki hvort það borgar sig að gera við hana en það kemur í ljós í vikunni hvað það kostar og hvort hægt sé að bjarga einhverjum gögnum úr henni!
Kalli er búinn að vinna alla helginna það hittist stundum illa á frítíminn okkar en svona er þetta bara núna og er víst mjög algengt í þessu samfélagi okkar.
Er búinn að vera mjög latur bloggari og er að velta fyrir mér hvort ég eigi að halda áfram að blogga eð kanski að breyta blogginu í myndablogg.
enn annars ætla að kveðja núna að sinni.
Bæbæ.
Vinna á morgun.
Nú þá er þessu að verða lokið í bili set kanski með link! ekki eins Hommaerótískan og síðast hehe. http://www.pimpcostumes.com/
ok bæ bæ.
Ps setti inn nýjar myndir frá heimferð okkar kalla, endilega að kíkja hér.
Fimtudagur
Hæ vaknað frekar snemma og hvað haldið þið, nátúruleg fékk mér kaffi! er alveg nettur kaffifíkill eða ekki nettur fíkill heldur alvarlega háður kaffi! þyrfti kanski að minka kaffidrykjuna en nóg um það, frestuðum bæjarferðinni þangað til á morgun enda alveg óþarfi að flýta sér í bæinn, veðrið er alveg indælt og mjög friðsælt hér hjá tengdó.
Förum inn á Reyðarfjörð á eftir, veit ekki hvort það er rétt að segja inn á fjörð en skiptir ekki öllu máli.
Var að gramsa á netinu og fann alveg ótrúlega flottar myndir sem flokkast sennilega undir hommaerótík þannig að ef þið eruð viðkvæm fyrir nöktu mönnum þá ekki skoða þetta! http://www.menexposed.co.uk/collection_1.html
Það er sól úti kanski gáfulegra að njóta þess, Ætla að hætta núna.
Njótið dagsins.
Luv
Regnmyndir.
Erum að fara í bæinn á morgun, alveg búinn að vera æðisleg slökunn hjá okkur.
Kveðja.